Um Karpið

Ritstjórnarstefna

Pennar hafa frelsi í greinum sínum. Ritstjórn leggur áherslu á að efni sé í samræmi við almennt velsæmi, frjálslynd gildi og sé ekki vefritinu ekki til skammar. Ritstjórn hefur rétt til þess að neita birtingu pistils ef hún telur hann ekki samræmast stefnu Karpsins. Pistlahöfundar Karpsins aðhyllast grundvallarhugmyndir um frelsi einstaklingsins, frjáls viðskipti, mál- og t jáningarfrelsi og aukin mannréttindi. Karpið er frjálslynt vefrit sem er óháð öllum stjórnmálaflokkum og er ekki ætlaður sem staður til að bera út stefnur og boðskap einstakra flokka. Öll skrif og vinna sem tengist Karpinu er unninn í sjálfboðaliðastarfi. Ritstjórn sér um að samþykkja alla nýja penna, gestapenna og taka á móti aðsendum greinum. Við leitumst við að birta skemmtilegar, vandaðar og upplýsandi greinar. Við ræðum um málefni en ráðumst ekki á fólk. Við notum rök og staðreyndir í greinum okkar og styðjumst ekki við gróusögur og við tölum aldrei niður til fólks eða lítillækkum það.

Ritstjóri Karpsins er Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir

Stefnuyfirlýsing

Karpið er frjálslynt samfélag pistlahöfunda sem leitast eftir því að finna og ræða nýjar hugmyndir. Við trúum á frelsi einstaklingsins, frelsi í viðskiptum og mannlega reisn. Við erum oft ósammála en nálgumst viðfangsefnið alltaf út frá frjálslyndri hugsun. Frjálslyndi er víðfeðmt hugtak sem allskonar fólk með allskonar hugmyndir fellur undir. Karpið var stofnað með þá einföldu hugmynd að leiðarljósi að frelsið sé yndislegt og að því beri að fagna. Við viljum gefa röddum frelsis pláss til að blómstra og rækta hugmyndir sínar. Karpið á að vera opinn vettvangur skoðanaskipta og baráttu fyrir frjálsara samfélagi þar sem einstaklingurinn, atvinnulífið og fjölbreytileikinn fær að blómstra. Við höfnum boðum og bönnum og trúum því að einstaklingurinn sé færastur að taka ákvarðanir um eigið líf. Við bjóðum öllum þeim sem vilja að leggja sín lóð á vogarskálarnar í þessari vegferð okkar.