Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar
Fyrir framan gamla fangelsið á Skólavörðustígnum stóðu ferðamenn og tóku af sér myndir. Byggingin er falleg, bogadregnir gluggar í klassískum stíl og úr grjóti sem var sérstaklega höggið út til að byggja þessa byggingu. Nánast engir tveir steinar eru eins. Fyrir utan þá sem halda bogadregnu gluggunum uppi, með sama hætti nú og frá upphafi.
Fyrir framan fangelsið á Skólavörðustíg stóðu fangar. Stóð svipting á frelsi. Stóð von, kannski í bland við óvon.
Á gluggum fangelsisins á Skólavörðustíg eru andlit. Öll mennsk, öll karlkyns, öll af mönnum sem dvöldu þarna inni, með réttu eða röngu. Í góðu eða vondu. Þessir menn dvöldu þarna fyrir ekki svo skömmum tíma síðan en það eru innan við tíu ár síðan að fangelsinu var lokað.
Þeir dvöldu í litlum fangaklefum, ekki mikið stærri en baðherbergi á meðal heimili. Stundum tveir saman. Þeir fengu að hreyfa sig í garðinum þarna fyrir aftan, garði sem er ekki mikið stærri en hundagerðið við BSÍ.
Og þarna standa ferðamenn í dag, í sínu besta pússi og brosandi í myndavélina til að ná réttu myndinni fyrir Instagram. Því þetta er sannarlega falleg bygging, þó saga hennar hafi ekki alltaf verið jafn falleg.
En vita þessir brosmildu, prúðbúnu ferðamenn hvar þeir standa þegar þau stilla sér upp fyrir Instagram-pósið?
Það er ekkert sem markar þetta hús, þennan stað frelsissviptingar og þjáningar sem slíkan. Þarna eru andlit sem eru í besta falli að falla í gleymsku. Stór- og smákrimmar landsins, með réttu eða röngu. En ekki allt er bara falleg mynd. Og ekki allt er stund fyrir rómantíska myndatöku. Ekki allt er staður fyrir tísku og bros.
Það er mikilvægt að sýna og segja frá þeim stöðum og þeim sögum sem húsin okkar byggja.
Fyrir framan hegningarhúsið á Skólavörðustígnum, hús sem er síðasta arfleifð hegningar án betrunar, refsingar án ábyrgðar, þar er ekkert skilti.
Þar er ekkert skilti sem viðurkennir þessa sögu. Ekkert skilti sem segir frá að þessi svo óumdeilanlega fallega bygging var fangelsi. Saga þessarar byggingar á það skilið að ferðamenn geti allavega fræðst um hana áður en þau gera sig tilbúin fyrir Instagram-brosið.

