Einar Karl Friðriksson skrifar

Fréttir í sumar af hríðlækkandi fæðingartíðni hér á landi ollu skiljanlega áhyggjum. Í öllu falli er þetta vert að skoða og ræða. Vissulega hafa fólksflutningar hingað gert meira en að bæta upp fyrir fáar fæðingar svo það er enginn skortur hér á ungu vinnandi fólki. Og svo sem enginn skortur á fólki hér á jörðinni ef út í það er farið. En það myndi sannarlega verða vandasamt fyrir samfélag eins og okkar ef fólki tæki hér að fækka vegna lágrar fæðingartíðni.

Umræða um þessa frétt stóð ekki lengi í sumar. Ég rakst þó nýlega á grein eftir varaþingmann um þetta. Inntak greinarinnar var að það væri samfélagsleg ábyrgð að búa til börn. Þetta þótti mér athyglisvert frá stjórnmálamanni í flokki sem kennt hefur sig við einstaklingsfrelsi. Höfundurinn er sem sé í Sjálfstæðisflokki og nokkuð áberandi álitsgjafi þeirra (sat áður á þingi og var um sinn aðstoðarmaður ráðherra, honum bregður auðveldlega.)

Auðvitað er það svo að við lifum ekki fullkomlega frjáls til að gera hvað sem okkur dettur í hug á meðan við lifum í samfélagi með öðrum. ”Frelsinu fylgir ábyrgð þegar við búum í samfélagi” sagði varaþingmaðurinn og ég tek heilshugar undir það. Hvar endar frelsið og hversu langt nær ábyrgð okkar? Þessar spurningar kjarna í raun öll viðfangsefni stjórnmála. Hver er ábyrgð okkar, samfélagslega ábyrgð, gagnvart hvort öðru og hvað erum við frjáls að gera án þess að frelsi okkar skerði frelsi eða gæði annarra.

Þetta eru stórar og heimspekilegar spurningar og auðvitað getum við ekki kafað svo djúpt fyrir hverja ákvörðun okkar í daglegu lífi. Það er því ósköp eðlilegt að við dagsdaglega látum stjórnast af siðum og venjum. Við erum félagsverur og mótumst af samfélaginu. Frjálslyndi er sú hugsun að við látum ekki siði og venjur njörva okkur niður og halda aftur af okkur og samfélaginu. Frjálslyndi felur ekki í sér ótakmarkað einstaklingsfrelsi því einstaklingur er aldrei einn. Þannig tala raunar róttækir frjálshyggjumenn, setja einstaklinginn í algjört öndvegi en samfélagið sett til hliðar eða bara alfarið hunsað. „There is no such thing as society” sagði Margaret Thatcher, goð í huga hinna róttæku.

En snúum okkur að barneignum. Getum við fellt það undir samfélagslega ábyrgð að búa til börn? Þið sem eruð foreldrar, hafið þið einhvern tímann litið á það sem samfélagslega skyldu að þið gátuð barn? Eru þá þau sem kjósa að eignast ekki börn eigingjörn? Að svíkjast undan? Hljómar í mínum eyrum ansi nýstárlega.

Ég held að það geti verið erfitt að greina röklegar ástæður fyrir því að fólk kjósi að geta börn, en ég fullyrði að fáir hugsi sem svo að það sé vegna ábyrgðar á því að viðhalda þjóðinni. Að það sé samfélagslegt framlag að búa til barn, svona eins og að gefa blóð og styrkja góðgerðarfélög og hjálparsveitir.

Það er risastór þáttur í lífi fólks að eignast börn. Svo stór að ég held að það sé af og frá að ætlast til þess að fólk geri slíkt fyrir samfélagið. Ég held að við eignumst börn af því að við teljum það gera líf okkar hamingjusamara. Kannski er það jafnvel að vissu leyti eigingjörn ákvörðun? Ákvörðun sem við tökum fyrst og fremst út frá því hvernig við viljum að líf okkar verði.

Ég held að það sé beinlínis galið að tala um það sem samfélagslega ábyrgð að eignast börn. Enda held ég að enginn hugsi þannig, að við eigum að eignast börn af skyldurækni við samfélagið. Ég held að varaþingmaðurinn hafi bara ruglast á því hvað sé samfélagslega ábyrgt og hvað honum sjálfum finnist æskilegur normatífur lífsstíll. Því það er grunnt á stjórnsemina hjá íhaldssömum varðhundum hins meinta einstaklingsfrelsisflokks. Ég þykist viss um að ef ég myndi hvetja Sjálfstæðismanninn til að minnka kjötát að hann myndi fussa og sveia og ásaka mig um sósíalisma. Það er samt í alvöru ekkert mál fyrir meðal-Íslending að alla vega helminga kjöt- og mjólkurneyslu og það væri sannarlega samfélagslega ábyrgt.

Það er reyndar merkilegt að í löndum eins og Kína, Japan og suður-Kóreu, þar sem einstaklingshyggja er einmitt ekki eins ríkjandi og hér á Vesturlöndum hefur fæðingartíðni lækkað enn meira en hér. Frá Kína berast fréttir af því að leikskólum sé breytt í dagdvöl fyrir aldraða. Í Japan standa milljónir af auðum húsum því eigendur þeirra eru látnir eða á elliheimili og nýir koma ekki í þeirra stað. Í Kóreu stefna kúrfur í þá átt að vinnuafl muni helmingast á 50 árum. Yfirvöld þar hafa hin síðari ár kynnt margvíslega hvata fyrir fólk til að eignast börn. Hvatarnir hafa hingað til lítið gert. Í vor bárust fregnir af stóru verktakafyrirtæki sem greiðir starfsfólki sínu ávísun upp á jafngildi um 10 milljóna íslenskra króna eignist þau börn.

Þurfum við bráðum að taka upp svipaða hvata? Það er ekki víst að við getum stólað til frambúðar á áframhaldandi straum af duglegum útlendingum til að leggja hönd á plóg. Ég held samt ekki að fjárhagslegir hvatar skipti sköpum upp á það hvort fólk eignist börn. En þeir geta haft einhver áhrif og geta miðlað þeim skilaboðum að samfélagið vill greiða götu barnafólks og gera þeim lífið aðeins léttara. Að samfélagið vilji börn. Við fjölgum ekki börnum með því að höfða til samvisku og samfélagslegrar ábyrgðar. Frekar skulum við bæta samfélagið svo ungt fólk finni að börn séu velkomin. Bætum hvata til að auðvelda barnafólki lífið en umfram allt gerum samfélagið manneskjulegra og gefum ungu fólki tilefni til bjartsýni.

Discover more from Karpið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading