Natan Kolbeinsson skrifar
Í júní 2007 urðu stórar og góðar breytingar á skemmtanalífi Íslendinga þegar reykingar innandyra voru bannaðar. Það var þarft skref til að breyta menningunni hér á landi. Nú 17 árum síðar er kominn tími til að afturkalla þetta bann og leyfa fólki aftur að reykja innandyra óski það þess.
Ég er uppalinn af reykingarfólki og verið umvafinn sígarettum alla mína ævi. Það var því velkomin breyting í mínu lífi þegar reykingar voru bannaðar innandyra. Með þessu banni hefur menningin breyst og reykingar ofan á það minnkað til muna. Við sem samfélag höfum samt tappað á því að hafa blátt bann á reykingum innandyra og því er kominn tími til að við leyfum aftur þann viðbjóð sem reykingar eru innandyra.
Staðir sem vilja bjóða uppá viský og vindla eða fólk sem vill totta djöfulinn á að geta sótt þá staði sem kjósa að bjóða uppá það innandyra. Menning okkar í sambandi við reykingar hefur breyst ótrúlega frá því bannið var sett á árið 2007 og því verður það að teljast mjög ólíklegt að margir staðir myndu hverfa aftur til þess tíma að leyfa fólki að reykja innandyra. Að fara út að reykja er orðinn hefð hjá fólki þar sem það hvílir eyrun frá háværu spjalli og tónlist og því förum við sem ekki reykjum oft út með þeim.
Valið að bjóða uppá reykingar innandyra á að vera í höndum eiganda hvers staðar fyrir sig. Alveg eins og við sjáum skemmtistaði í auknum mæli loka fyrr en þau þurfa þá þýðir þessi einfalda breyting einfaldlega það að meiri fjölbreytni færist í skemmtana líf okkar þar sem við fáum fjölbreyttari staði og rekum ekki reykingarmenn út í öll veður til þess eins að svala þessari fíkn sinni. Ég vil bjóða reykingarmanninn velkominn aftur inn í hlýjuna hjá þeim sem vilja hann.

