Siggeir F. Ævarsson skrifar
Árum saman hefur aðförin að einkabílnum staðið yfir en nú er mál að linni. Því nær væri að skera upp herör enda hefur hin meinta aðför augljóslega ekki virkað. Einkabílum á götum Reykjavíkur fjölgar með ógnarhraða nánast frá degi til dags, en um 70 bílar hafa bæst við umferðina að meðaltali í hverri viku frá 2016. Þið lásuð rétt, 70 bílar í hverri viku, tíu bílar á dag, 3.650 bílar á ári. Það gerir næstum þrjátíu þúsund bíla síðan þá.
Það er kominn tími til að fólk átti sig á þeirri bláköldu staðreynd að eina leiðin til að greiða úr því umferðaröngþveiti sem ríkir á höfuðborgarsvæðinu er að fækka einkabílum á götunum, enda eru þeir óhagkvæmasti samgöngumátinn þegar litið er til fjölda farþega. Um það er engum blöðum að fletta.
Sumir sjálfskipaðir sérfræðingar þreytast þó ekki á að nefna aðrar lausnir. Má þar nefna að fólk hætti að dóla sér á vinstri, skilvirkari umferðarljós og fleiri mislæg gatnamót. En þó svo að við myndum malbika hraðbrautir yfir alla Reykjavík breytir það ekki þeirri staðreynd að það eru einfaldlega of margir bílar í Reykjavík. Alltof margir hreinlega.
Þetta vita allir sem hafa reynt að leggja bíl á dagvinnutíma í Reykjavík. Öll stæði eru alltaf meira og minna full og fólk leggur ólöglega frekar en að taka strætó eða labba nokkra auka metra. Algjört ófremdarástand ríkir í bílastæðamálum. Hvort sem það er við Landspítalann, í Borgartúni, við Suðurlandsbraut eða við alla framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Svona mætti lengi telja.
Bílar taka nefnilega ekki bara pláss þegar þeir eru í notkun, heldur taka þeir gríðarlegt pláss þegar við erum ekki að nota þá sem er megnið af líftíma þeirra. Í lok árs 2022 voru 287.368 fólksbílar á Íslandi. Ef þeir taka að meðaltali 10 m2 pláss í stæði þarf að leggja tæplega þrjár milljónir fermetra af landi undir þá, bara til að geyma þá, en það samsvarar rúmlega 400 knattspyrnuvöllum.
Borgarlínan er vissulega ljósið í myrkrinu í þessu svartnætti umferðarsturlunar sem við böðlumst í gegnum á hverjum degi. En biðin eftir henni er orðin löng og á meðan höfum við vanrækt almenningssamgöngur, engum til heilla. Öflugar almenningssamgöngur eru aftur á móti öllum til heilla. Þær ættu að vera raunhæfur valkostur fyrir þá sem vilja nota þær og það ætti að vera keppikefli samfélagsins að hafa þær í lagi, en ekki aðhlátursefni.
Ef fólk vill í alvöru efla hag einkabílsins er fyrsta skrefið í þá átt að efla almenningssamgöngur á Íslandi. Þær eru hið raunverulega frelsi fyrir alla. Einkabíllinn er einungis munaður fyrir suma.

